Halli Gunnarss
08.08.2006 15:17:10 / hrozzi

NÝTT BLOGG

er kominn með nýtt blogg http://hrozzi.bloggar.is/

» 0 hafa sagt sína skoðun

03.08.2006 15:52:19 / hrozzi

Jæja

Well núna er komið að því er að fara að færa inn færslur aftur eftir langa pásu..nenni þessu ekki en ætla að blogga meðan ég er í námi í Köben...þannig að allir fylgist nú með.....er semsagt búinn að fá inni í Cobenhagen Buisness School og er að fara erlendis eigi síðar en 25 ágúst....er búinn að fá fína íbúð og allt er að verða klárt...set meiri fréttir inn fljótlega.... Venlig hils Harald Gunberg

» 0 hafa sagt sína skoðun

08.12.2005 20:53:58 / hrozzi

Scania og Vabis

Jæja....verð nú aðeins að monta mig af þessum grislingum sem ég á...úff...fór á leiksýningu hjá Emblu í Borgarleikhúsinu....þar sem hún var að sýna með öðrum krökkum söngleik....og er barnið með þetta....eða hvað....alveg öruggt að hún erfði sönghæfileikana frá pabba sínum...sem ég held að hljóti að vera George Michael....eða systir hans Elton John...allavegana ekki Hrozzi Gunnarsson....þetta var bara snilld...og stúlkan hitti alla erfiðu tónana....í sal með hátt á annað hundrað manns....Kalli Bjarni hvað.....síðan fengum við gefins disk með 13 lögum sem þar sem Embla syngur eitt lag á..ég þarf að finna út hvernig ég get sett það hérna inn....stúlkan er ótrúleg....

Nema hvað þá fór ég með Scaniu( Victor Orri) og Vabis (Yngvi Reyr)..áðan á hestbak inn í reiðhöll...og þeir fóru sjálfir einir á hestbak...stýrðu og allt...3 og 4 ára....geri aðrir kúrekar betur....þetta er í beinan karlegg....drengirnir...tóku bara pakkann og kláruðu hann....síðan teymdi Scania bróður sinn á hestbaki alla leið aftur upp í hesthús...og pabbi gamli elti bara....svona á þetta að vera....rokk og pönk..nú er bara að kaupa leðurbuxur og neftóbaksdós fyrir trukkana...og skrá þá í tamningastöðina Rass...gera þá að heiðursfélögum strax held ég......


» 4 hafa sagt sína skoðun

07.12.2005 12:36:26 / hrozzi

Grillkjöt til sölu

Jæja...nokkuð síðan ég hef bloggað...enda brjálað að gera í því að slappa af...Var orðinn mjög góður í bakinu eftir nálar satans...en bleiki djöfullinn sá nú heldur betur við því á mánudaginn...Var að fara á hestbak...þegar tannsmiðurinn..bað mig að hitta sig út við hestakerrustæði til að skoða nýja kerru sem einhver snillingur var að eyða 1,5 milljónum í..."hvað er það"...jæja...ég teymi bleika skrattann úteftir...og skoða kerruna..og jú ein sú flottasta kerra sem ég hef séð..enda eins gott...Well...tannsmiðurinn sem rétt nennti að fara út úr nýja Range Rovernum...til að skoða kerruna...(hann keyrði auðvitað út eftir..og lét mig labba...).. hann skutlast svo inn í bílinn aftur....og segir mér að drífa mig á bak...og koma í reiðtúr...ég hélt nú það.... sá bleiki er búinn að vera eitthvað órólegur..á meðan kerruskoðun stóð...leist greinilega þannig á málið að hann ætti að fara inn í hana eða eitthvað...og var bara með skæting við kaddlinn þegar hann ætlaði á bak....stóð ekki kjurr og lét eins og vanfær mella... kaddlinn ætlaði bara að taka þetta með trukki og bruna á bak...þannig að sá bleiki yrði ekki var við....(eða þannig)..ég snýst í halfhring...skelli mér eldsnöggt í ístaðið..lyfti mér upp frá jörðu og yfir með löppina...en sá bleiki fór bara af stað nokkur skref og ég lenti aftan á rassgatinu á helvítinu....sem (fyrir ykkur sem eruð ekki hestafólk) er ókostur..þ.e.a.s. lenda á rassgatinu með hnakkinn fyrir framan sig...sá bleiki byrjar að hrekkja allsvakalega..og ég bara hangi í taumnum...grátandi og missi þvag....hesturinn hoppar út kerrustæðið..ég ennþá á baki..þangað til kvekyndið tekur krappa hægri beygju og sendir mig beint á beislið á nýju kerrunni....ég lendi auðvitað helvíti illa...tannsmiðurinn í krampa inn í jeppanum..og dreif sig út..til þess að skafa mig af beislinu...klárinn horfinn niðrefir í smáralind.....og ég er orðinn í bakinu eins og áður....

Allavegana ef þið viljið brydda upp á nýjungum í matseld um jól eða áramót látið mig bara vita er með dýrindis hrossaket til sölu eða jafnvel bara gefins....tunnan er fyrir utan hesthúsið og ég skal bara skutla henni til ykkar....

L8ter:klikk:


» 1 hafa sagt sína skoðun

30.11.2005 20:02:48 / hrozzi

Sigtryggur Helgason

Ég vil vera jafn duglegur og Sigtryggur Helgason sem tekur stífa viku í að skreyta húsið sitt fullt af jólaljósum...200 seríur......kaddlinn er beint á móti Boggaspítalanum...ég sem nenni varla að skeina mér sjálfur....en ef ég eignast hús þá lofa ég hérmeð að skreyta það..með seríum og ljósum...fyrir mig og litlu börnin í Reykjavík....og nærsveitum.......nú er bara að fara að undirbúa jólin....gera sig reddí í skötu á Þollák...hjá afa Hagalín.... og bjóða Önnu Margréti með....eða ekki....ef einhver getur platað hana til að smakka kæsta skötu...borga ég hinum sama...25.000 kaddl og ég stend við það.......!!!! Áskorun jólanna......reynið og vinnið 25.000 kaddl....

» 2 hafa sagt sína skoðun

25.11.2005 09:48:01 / hrozzi

NÁLAR SATANS

Ég er búinn að vera eins og níræð kona í bakinu síðustu daga...Rikki Tannsmiður bauð mér í kaffi upp í hesthús í spjall og svona... en gleymdi að segja mér að það þyrfti að tæma fjörtíu feta gám fullan af spónarpökkum...sem hver um sig vegur 40 kíló...og hvað gat ég gert annað en farið í málið...fjegurhundrað og seytján stykki...takk...og kaddlinn krypplingur í baki eftir það...TAKK FYRIR KAFFIÐ RIKKI......Allavega tengd móðir var ekki lengi að græja nudd fyrir mig...og ég átti að mæta í gær hjá meistara Erni í hnoð...allt í toppmálum...ég kem inn og það mætir mér músík beint úr rassgatinu á Enyju og frænkum hennar...en þær vóru greinilega staddar út í skógi þegar þær tóku upp diskinn því það voru ekkert nema fuglar í bakröddum...og íkornar og eitthvað svona skógardrasl sem ég þekki ekki alveg..þar sem eini skógurinn sem ég hef kynnst er heiðmörk...Ég segi svona stundarhátt við Ödda Pönk...."er ég ekki á réttum stað fyrir nudd??" Hann hvíslar "hver ertu vinur??"...ég segi "Haraldur"..."jamm komdu hérna inn".....Hann tekur í höndina á mér...já í höndina á mér...og leiðir mig inn í herbergi fullt af olíu og einhverjum plakötum með berum líkömum...sem hefði alveg verið flott ef það hefðu ekki verið þessar aðstæður og kannski Anna Margrét verið með mér en ekki Öddi Pönk..Nema hvað...Hann skipar mér úr öllu nema G-strengnum sem ég og geri...og leggst á bekkinn...og Öddi byrjar að strjúka á mér tærnar...og segir að ég sé svo stífur..og hann ætli að virkja í mér brisið....ég veit ekkert hvað bris er...en kenndi samt líffræði...allavegana hann strýkur uppeftir innanverðum lærunum á mér...alveg upp að g-streng..mjög þægileg tilfinning.....NEI ALLS EKKI......en allavegana hamast hann á lærunum..til að virkja brisið skiljiði...síðan segir hann að hann ætli að vera vondur við mig....úff....Hallanum var alveg hætt að lítast á blikuna...hélt að hann ætlaði í kögurleðurjakkann sinn og setja á sig leðurderhúfuna...en nei..þá kemur kaddlinn með einhverjar nálar....sem hann stingur á kaf í eyrun á mér....sex stykki..og ég að verða rænulaus..þar sem ég er með geðveika nálafóbíu...hélt að ég væri að fara í nudd.....síðan segir hann við mig að ég verði að standa upp....og beygja mig fram....ég geri það...með nálar út úr eyrunum....og rassinn út í loftið.....og hann spyr alltaf...finnurðu eitthvað...ég fann ekki neitt...nema nálarhelvítin í eyrunum....og verk í bakinu....og g-strenginn skerast uppí rassgatið í gyllinæðina...allavegana leggst ég aftur á bekkinn..og Öddi byrjar að nudda á mér belginn....segir að hann þurfi að virkja lifrina og magann og lungun...stingur nál í hendina á mér....og handarbakið...og spyr svo hvort ég finni eitthvað.....ég fann ekkert...nema bara nálar satans í eyrunum og hendinni....hann spyr hvort að ég finni ekki kraft jarðarinnar streyma upp í gegnum lappirnar og upp í líkamann...??????? ...."ég veit það ekki".. sagði ég...." á ég að finna það??"..."Jæja vinur þetta er orðið fínt hjá okkur í dag" sagði Öddi þá við mig....og ég máttí bara klæða mig....en sem betur fer tók hann nálarnar út áður...og ég finn að brisið er allt annað núna heldur en áður....allavegana...var ég rosa svangur í morgun þegar ég vaknaði..og ég þakka það engum öðrum en Ödda nál....og hans kompaný....Enju og frænkunum...ég er staðráðinn að fara aftur..til að komast yfir nálafóbíu....læt ykkur vita....

» 1 hafa sagt sína skoðun

19.11.2005 20:55:20 / hrozzi

Ég og Hemmi Gunn

Well...ligg hérna upp í rúmi..og er með Scania og Vabis við hliðina á mér...við erum að hlusta á Eldfærin á geisladisk...Er að spá hvort að Hemmi Gunn sé virkilega svona lélegur söngvari eða hvort hann sé bara að reyna??? Það er eins og hann og Gylfi Ægis hafi farið í keppni..svona versti söngvarinn keppni..??? En mikið rosalega er þetta samt spennandi...núna er Hemmi að syngja og ég kvóta " Hvað er að þér kona..spádómur er spádómur..tra lalala"..Gylfi hefur sjaldan klikkað með textana.... Annars allt í toppmálum...hestar komnir á hús og leðurbuxurnar komnar á lærin..gallajakkinn á axlirnar..og tóbaksdósin í vasann...hvernig getur það orðið betra...???

» 2 hafa sagt sína skoðun

14.11.2005 10:00:12 / hrozzi

Töframaðurinn

Verð að minnast á að snillingurinn Reynir "leikstjóri Íslands" Lyngdal....tók auðvitað Edduna fyrir bestu stuttmynd ársins.....það er ekki að spyrja af því þegar drengurinn tekur sér eitthvað fyrir hendur....hann er alltof stór fyrir þetta land...og auðvitað á hann að vera í Hollywood...eða þar um kring....til lukku Reynsi minn....þú ert snillingur.... Kíkið á þetta http://www.pegasus.is/media/news-photo/flottinn.mov

» 1 hafa sagt sína skoðun

14.11.2005 09:48:37 / hrozzi

Tinnan mín...

Jæja...það er gaman að segja frá því að nú þegar hafa þúsundir fyrirspurna borist inn á borð hjá SPÁMANNI TRJÁNNA...ég verð því miður að velja eitt bréf úr bunkanum...og það er einmitt frá henni Tinnu Mark....Jæja ...eftir að hafa eytt helginni upp í heiðmörk við rannsóknir í trjágróðrinum þar..og kvöldin fóru í almennar stjörnuskoðanir...og þá er ég ekki að meina Stjörnustelpurnar...ja nema Önnu Margréti....þá hef ég komist að því að Tinna er einmitt Kýprusviður....sem skýrir aðuvitað hið fallega miðjarðarhafs útlit sem einkennir hana....en svona er nú persónuleikaspáin.... Kýprusviður - Tryggð 25.01-03.02 & 26.07-04.08 Hér er á ferðinni sterkbyggð manneskja sem býr yfir aðlögunarhæfni og tekur því opnum örmum sem lífið hefur upp á að bjóða. Hún er bjartsýn að eðlisfari og sækist eftir viðurkenningu, oftar en ekki í formi fjármuna. Manneskjan er ástríðufullur elskuhugi sem getur verið erfitt að fullnægja. Hún er trygg en skapbráð, getur verið smámunasöm en jafnframt kærulaus, og er á stundum svo til óviðráðanleg. Jamm jamm...svona er nú þetta........ Bleft og ekki gleyma smáfuglunum....

» 1 hafa sagt sína skoðun

11.11.2005 09:48:51 / hrozzi

Ég er álmviður!!!!!Bara svo það sé á hreinu....

Ég hef verið að stúdera mjög mikið stjörnumerki...og tengsl stjörnumerkja við hin ýmsu tré...þarna sameinast hjá mér tvö af mínum aðaláhugamálum..nefnilega hreyfing himintunglanna og skógrækt....Ég hef út frá þessum rannsóknum komist af því..að miðað við minn fæðingardag og fæðingarár...þá er ég tengdur hinu fallega tré álmviðnum...hver kannast ekki við rómantískar myndir eins og Nightmare on Elmtreestreet.....allavegana...ég hef sett saman smá lýsingu tengda álmviðnum...ef þið viljið siðan láta mig tengja ykkur við heim himintungla og trjáa..látið mig vita.... Álmviður - Göfuglyndi 12.01-24.01 & 15.07-25.07 Manneskjan er í góðu ásigkomulagi, hugar vel að útliti sínu og klæðist fallegum fatnaði. Hún gerir ekki miklar kröfur en á erfitt með að fyrirgefa mistök. Manneskjan tekur illa skipunum, vill frekar stjórna sjálf. Hún er bæði glaðvær og gjafmild, og göfuglynd með eindæmum. Hér er á ferðinni áreiðanlegur förunautur, hagsýnn og ákaflega skemmtilegur. Er þetta ekki ég í hnotskurn....held það bara...verið í sandbandi.... SPÁMAÐUR TRJÁNNA.... Anna Margrét er FURA

» 1 hafa sagt sína skoðun

09.11.2005 15:41:09 / hrozzi

Falleg og mannleg mynd

Hver þekkir ekki mannlegu og rómantísku myndina SHINING http://befb.vortex.is/shining-trailer.mov

» 0 hafa sagt sína skoðun

09.11.2005 11:26:11 / hrozzi

Fat women and feeters...hvað er það

Aggi sagði mér frá ansi merkilegum hlut sem viðgengst..Auðvitað hefur fólk misjafnar þarfir en ég veit ekki með þetta....Anyways...Það er gaur sem hefur mikinn áhuga á þéttvöxnu kvenfólki sem er svo sem ekki í frásögur færandi...En hann fer aðeins lengra en flestir...Konan hans missti 30 kíló í átaki..og okkar maður skildi við hana undir eins. Hann fann aðra þéttvaxna og þau í sameiningu ákáðu að þeirra misssion í lífinu væri að gera frúnna að feitustu konu í heimi....og það tókst...allavegana þá var heimildarmynd af þeim saman í mission.."ekki impossible"...Þeim tókst að koma keddlingunni í 800pund...ca 400kíló....frúin föst í rúminu...og kaddlinn að þrífa á milli spiklagana 3x á dag...brjóstin ca 20 kíló hvurt...og minn maður ansi hreykinn....jæja..það sem að þetta gengur út á er að hann þarf svo mikið á því að halda að vera "needed"..þannig að eftir því sem að hún er feitari og meir ósjálfbjarga..þeim mun meira fær okkar maður út úr þessu....ég hef einmitt fundið fyrir þessari tilfinningu..þannig að ég ætla í hádeginu að kaupa 10kílóa Gunnarsmajónes fötu og rör..og láta Önnu Margréti taka á því...nú skal hún í 810 pund... Takk....

» 3 hafa sagt sína skoðun

07.11.2005 10:18:03 / hrozzi

Kínarúllur

Hmmm...jæja félaginn ennþá á Grensás..þ.e.a.s. ekki ég heldur súkkuskrýmslið...búinn að vera á sjötta mánuð á fljótandi fæði og hafði misst einhver kíló í leiðinni....nema það var einn góðan veðurdag að mamma kemur í heimsókn með tvær kínarúllur fyrir pjakkinn...og allt í góðu með það...drengurinn skellir þeim í sig með góðri lyst og ansi hreint lystugar rúllur....síðan fer hann með mömmu niður á fyrstu hæð í lyftunni að kikka á sjónvarpið og blöðin...en fljótandi fæðið setur sitt mark á líkamann og að fá sér tvær kínarúllur létt spæsí er eins og að henda handsprengju í vömbina...þannig að eftir ekki svo langa stund fara að heyrast skrítin hljóð í maga drengs....og hann í hjólastól með gifs upp í nára...tekur á rás...eftir ganginum segir við mömmu að hann ætli að skjótast upp í herbergi....hann hjólar sem mest hann má að lyftunni...hamast á takkanum nær rænulaus af drullusting....lyftan seinni en nokkru sinni áður...en kemur þó fyrir rest...inn í lyftuna og upp á þriðju...út og inn eftir gangi....alla leið að klósettinu....sem var laust....sem betur fer.....hnoðar stólnum gegnum dyrnar.....og stillir honum upp við hliðina á herra gústafsberg.....lyftir sér upp....og drullar í sig....hann finnur hvernig leðjan sígur niður innanverð lærin og niður með gifsinu....samt eitthvað svo frelsandi tilfinning.....unglingurinn...í panikki....fleygir sér á gólfið ....og skríður að hnappnum....dinglar og biður um hjúkku.....þegar hann heyrir að tekið er í húninn....öskrar hann..."GERÐU ÞAÐ SEM ÞÚ ÞARFT AÐ GERA.....ÉG ÆTLA AÐ LOKA AUGUNUM ÉG VIL EKKI SJÁ HVER ÞETTA ER...." Nú hann eyddi restinni að deginum...inn á gifsstofu þar sem að sagað var utan af honum gamla gifsið...fullt af kínarúllum... Takk

» 1 hafa sagt sína skoðun

05.11.2005 13:18:03 / hrozzi

Bókabíllinn

Jæja... ég og Scania og Vabis erum búnir að vera úti í rigningu og roki og nokkuð vel haldnir...árshátíðin var fín og dádýrið virkaði vel...mikið af fólki og stemmingin alveg framúrskarandi...Ég hitti m.a. mann sem ekki er svosem í frásögur færandi..nema hvað að hann sagði mér ágæta sögu frá unglingsárum sínum..ég ákvað að láta hana fljóta hérna þar sem að menn geta séð að æskan er ekki alltaf eins auðveld og menn vilja halda.

Allavegana...drengurinn á fimmtánda ári keypti sér susuki ts 50 skellinöðru sem hann hafði safnað sér fyrir frá því um fermingu eins og svo margir aðrir á þessum árum..það er samt rétt að fylgi með sú staðreynd að hann er ekki einn af þeim karlmönnum sem verða eitt með farartæki sínu þ.e.a.s ballans og tillfinning fyrir akstri er í tæpu meðallagi og rúmlega það..Nema hvað okkar maður ekki búinn að eiga Súkkuna nema ca 3 daga og hafði á þeim tíma tekist að brjóta báða spegla af og framljósið laskað... það er auðvitað skotist út í sjoppu margoft svona til að ná sér í appelsín, lakkrísrör og froska...en einhverntíman á leiðinni út í sjoppu var kyrrstæður bíll á veg drengsins...og ekki neinn venjulegur bíll heldu BÓKABÍLLINN sem að snillingnum tókst að lenda súkkunni beint á..og sjálfum sér...og til að gera langa sögu stutta...var sjúkrabíll kallaður út til að flytja drenginn á gjörgæslu og kranabíll til að flytja súkkuna á haugana...okkar maður milli heims og helju í töluverðan tíma eftir slagsmálin við bókabílinn og súkkuna...þar á eftir upp á grensás í endurhæfinu þar sem hann var tjóðraður á hönum og fótum í rúm þannig að allt greri rétt..hjúkkur komu þrisvar á dag til þess að snúa unglingnum og svampa lemstraðann líkamann...þetta var svo sem allt í góðu nema að móðir piltsins kom nánast daglega í umhyggju sinni...enda með miklar áhyggjur af líðan sonarins en hún hafði að vísu þann leiða sið að koma alltaf með gesti..gamlar frænkur þá aðallega og jú jú nánast alla sem höfðu áhuga á að heimsækja drenginn...sem var svo sem bara ánægjulegt að flestu leiti..nema að það eina sem mamma gerði var að svipta sænginni af tjóðruðum unglingnum til að sýna öllu genginu..ekkert annað en hreðjarnar á drengnum sem höfðu bólgnað allsvakalega eftir höggið frá bókabílnum og voru að sögn móður.... ég kvóta " Sjáiði bara eistun á stráknum stelpur þetta eru bara eins og appelsínur, hvernig má þetta vera"....okkar maður hefur aldrei síðan mætt í eitt einasta fjölskylduboð...hjá ættinni...enda krumpuð bólgin appelsínueistu svo sem ekkert sem að maður vill hugsa um þegar þú horfir á aldraðar frænkur með blátt hár...

Lífi súkka ts 50

» 2 hafa sagt sína skoðun

04.11.2005 15:07:15 / hrozzi

Trukkastuð

Well ætla að reyna við best klæddi karlmaðurinn á árshátíðinni á eftir...á Mímisbar...tvöfaldur séníver í vatn..og kaddlinn er mættur...Reynir leikstjóri mun að vísu gera sitt enda giftur stílista Íslands, en ég geri allt sem í mínu valdi stendur til að veita honum verðuga samkeppni....annars er ég drullusvekktur að þurfa að mæta..er búinn að vera að vinna eins og svín og ekkert verið með krökkunum..þannig að ég var farinn að hlakka þvílíkt til að kúra með Emblu og trukkunum tveimur...þeim Scania og Vabis...en amma gamla reddar mér fram að miðnætti þá brunar maður heim og tékkar sig inn í stuðið....morgundagurinn fer síðan í almennar pælingar um hvað er að gerast nýtt í lego og leir...og hvað má betur fara í bleijum fyrir 2 ára ....nota bene alveg að vera þriggja og er bara með bleiju á nóttinni...af því að pabba finnst ekkert sérstaklega kósý að vakna blautur... Allavegana trukkarnir kveðja...

» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2